<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Oct 1, 2007
Ég hefði alveg verið til í það

Í morgun sagði ég við Herdísi...."oj hvað það er vont veður úti"
Þá sagði hún..."eigum við ekki bara að vera inni í dag?"
Þá sagði ég..."jú þið verðið ábyggilega bara inni í leikskólanum í dag"
Þá sagði hún..."nei eigum við ekki bara að vera heima í dag?"

Litla dúllan...ég hefði sko alveg verið til í að vera bara heima í dag með snúllunni minni uppí sófa á nátturunum með heitt kakó og kex glápandi á Madagaskar...

Talandi um Madagaskar...við mæðgurnar skelltum okkur á McDonalds í gærkveldi og þar sem við stöndum í röð við afgreiðsluborðið byrjar mín..."Ég fíla'ð dilla dilla...ég fíla'ð dilla dilla" ....(syngist eins og lagði "I like to move it move it")....og hristi sig alla sem mest hún mátti...þetta var alveg óborganlegt og vakti mikla kátínu hjá nærstöddum sem og móður hennarBig Smile


Posted at 06:41 am by tol123ith
Comments (3)  

Sep 29, 2007
Ef þú veist ekki svarið........ekki svara!!!


Posted at 03:09 pm by tol123ith
Make a comment  

Sep 24, 2007
Love is in the air

Vá það á aldeilis að fjölga mannkyninu. Hér er listi yfir þær óléttínur sem ég veit um:

September:
Gunna: Búin að eiga stelpu
Þórhildur: Á von á strák, gæti verið búin

Október:
Birta: Kyn ekki vitað
Anna Sigga: Á von á stelpu

Nóvember:
Yours truely: Á von á stelpu
Jóhanna Edith: Á von á stelpu

Desember:
Kolla: Kyn ekki vitað
Inga: Á von á stelpu

Janúar:
Herdís: Á von á strák

Febrúar:
Ingrún: Kyn ekki vitað

Mars:
Birna syss: Kyn ekki vitað

Aprílbumbur vinsamlegast gefið ykkur fram!


Posted at 08:04 am by tol123ith
Comments (5)  

Sep 20, 2007
Fjúff!

Guð hvað ég er fegin...ég er búin að standa í þeirri meiningu að það væri þriðjudagur í gær og miðvikudagur í dag þangað til ég kíkti í Blaðið áðan...
Sannarlega ánægjulegt þegar vinnuvikan styttist svona hjá manniBig Smile En eins gott að misskilningurinn var leiðréttur því annars hefði ég misst af kaffihúsakvöldinu í kvöld og rokið af stað með Herdísi á leikskólann á morgun og komið að luktum dyrum þar sem það er starfsdagur. Ég hefði ábyggilega svo ekki einu sinni fattað það strax því það hefur komið fyrir áður að við mæðgur stóðum fyrir utan og biðum eftir að einhver starfsmaður kæmi og opnaði búlluna.

En já það var sem sagt Blaðið sem made my day to dayBig Smile


Posted at 04:39 am by tol123ith
Comments (2)  

Aug 26, 2007
30 vikur

  • Barnið getur nú bæði fundið bragð og skynjað sársauka.
  • Það er 27 sm og vegur 1,5 kg.
  • Höfuðið er næstum 8 sm að þvermáli.
  • Fæturnir næstum 6 sm langir.
  • Hrukkótt húðin sléttist mikið.
  • Hjá drengjum eru eistun nú komin niður í pung.
  • Barnið stjórnar nú sjálft líkamshita sínum.
  • Meðgönguhormón hafa nú gert liðböndin mjúk og þú upplifir líklega einhverja bakverki. Reyndu að rétta úr bakinu þegar þú stendur og situr

  • Posted at 01:56 pm by tol123ith
    Make a comment  

    Jul 16, 2007
    24 vikur

    Vika 24

    Hægðatregða er einn meðgöngukvillunum sem gæti byrjað að gera vart við sig.  Breytingar á blóðrásarkerfi geta valdið því að blóðþrýstingurinn lækkar á þessu tímabili og því gætir þú fundið fyrir svima.  Þetta getur einnig gerst þegar þú liggur á bakinu vegna þess að legið sem alltaf verður þyngra og þyngra þrýstir þá á stóru bláæðina í kviðarholinu sem flytur blóð til hjartans frá neðri hluta líkamans.  Ef þú finnur fyrir svima þegar þú liggur á bakinu, skaltu snúa þér á aðra hvora hliðina.  Efri brún legsins er nú á móts við naflann. Þegar þú þreifar á barninu geturðu fundið fyrir hinum ýmsu líkamshlutum.

    Nú eru skilningarvit barnsins að vakna til lífssins. Eftir að það er fætt gæti það munað eftir lögunum sem þú ert að syngja fyrir það núna. Einhvern daginn þegar þú ert alveg vitlaus í skapinu er barnið þitt sama sinnis og sparkar allt hvað af tekur. Það er mögulegt að börn sem fæðast við 24 vikna meðgöngu geti lifað af fái þau notið umönnunar á nýburagjörgæslu en það er þó alls ekkert öruggt í þeim efnum.  Stærsta vandamálið er að lungun eru ekki nógu þroskuð og þess vegna þarf fyrirburinn aðstoð við öndun.  Barnið er ennþá mjög grannt en fer að bæta á sig úr þessu.  Það vegur nú um  630 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 21 sm.



    Posted at 03:19 pm by tol123ith
    Comments (2)  

    Jul 13, 2007
    Hláturinn lengir lífið!

    Henni er örugglega ekki hlátur í hugaTongue

    Ég bara varð að deila þessari frétt með ykkur sem ég rakst á á Seagal-síðunni hjá Hilla og þeim heheheBig Smile:

    Góða helgiBig Smile


    Posted at 02:33 am by tol123ith
    Comment (1)  

    Jul 9, 2007
    Check it out!

    Þetta er alveg magnaðBig Smile...sjáið hvernig þarmarnir og innyflin þrýstast uppSurprise

    http://www.umm.edu/pregnancy/000088.htm


    Posted at 01:39 pm by tol123ith
    Make a comment  

    23 vikur

    Vika 23

    • Súrefnisþörf fóstursins er fullnægt með því súrefni sem það fær gegnum fylgjuna en á því augnabliki sem barnið fæðist þarf það að taka við því hlutverki.  Lungun þurfa að undirbúa sig fyrir það.  Nú hefst framleiðsla á svokölluðu ,,surfactant" en hlutverk þess er að varna lungnablöðrunum frá því að falla saman. 
    • Fóstrið mælist yfir 20 sm og vegur um 520 gr. 
    • Innra eyra fóstursins er nú fullþroskað og þróun jafnvægisskyns er hafin. 
    • Nú leynir sér ekki lengur á útliti hinnar verðandi móður að hún er barnshafandi. 


    Posted at 01:35 pm by tol123ith
    Comment (1)  

    Jul 4, 2007
    Ammælið mitt

    Þá er maður orðin 28 ára...nálgast óðum í 30 Shocked Annars er ég ekki ein af þeim sem hræðist eða líður illa með það að eldast...mér finnst það bara gaman (allavega ennþáTongue) Dagurinn hefur bara verið með besta móti...var reyndar dálítið stress og mikið að gera í vinnunni strax í morgun en það er bara krefjandi og skemmtilegt...tíminn líður þá miklu hraðar og manni leiðist allavega ekki. Ég kom með þessa líka dýrindis frönsku súkkulaðiköku með snikkerskremi með mér í vinnuna og kvennsurnar áttu bara ekki orð til að lýsa hrifningu sinni yfir henni. Þetta var frumraun mín í franskri súkkulaðikökugerð þannig að maður er bara nokkuð ánægður með niðurstöðunaBig Smile...sérstaklega sökum þess að það hefur aldrei legið nógu vel fyrir mér að baka...ég er meira fyrir það að elda...er svona slump-manneskja...dass af þessu...dass af þessu og smakka sig til en það er víst ekki gæfuleg aðferð þegar verið er að baka...þá þurfa öll hlutföll að vera nákvæm og rétt til að hlutirnir gangi upp. Hann Diddi minn er einmitt svona nákvæmnis-manneskja...hann mælir allt sem mögulega er hægt að mæla og gerir hlutina nákvæmlega eins og þeir eiga að vera...enda líka er hann snilldar bakari og sér oftast um þá deild á þessu heimiliSmile Hann myndi t.d. aldrei taka upp hamar og nagla og reka hann í gegnum vegginn til að hengja eitthvað upp án þess að taka fram málband og hallamál...ef ég ætti að gera þetta myndi ég taka naglann og reka hann bara svona ca á réttan stað...enda líka fæ ég ekki að koma nálægt svona hlutum...kannski sem betur ferTongue
    En svo ég haldi áfram með afmælisdaginn minn, þá sótti ég Herdísi á leikskólann og brunuðum við í Smáralindina og versluðum í matinn því ég var búin að bjóða mömmu, pabba, Hilmari, Kollu, Birnu og Loga í mat. Við keyptum hrikalega góðar svínalundir sem Diddi smellti á grillið og allir voru mettir og sáttir og sérstaklega ég þar sem ég fékk stórglæsilegt úr frá fólkinu mínu í afmælisgjöf...takk fyrir migBig Smile  Semsagt...bara góður dagur í alla staði og ekki spillti nú þetta yndislega veður fyrir.

    Frægur sem á sama afmælisdag og égShades:


    Geraldo Rivera

     


    Posted at 03:12 pm by tol123ith
    Comments (2)  

    Next Page